Það styttist í fyrsta leik tímabilsins en hann verður á Fimmtudaginn í Kórnum og hefst kl.21:00 gegn nýliðum Esjunar sem saman stendur af drengjum í Vesturbænum og leggja þeir mikinn metnað í liðið og halda uppi aðdáendasíðu á Facebook, einnig hafa þeir auglýst leikinn vel og bjuggu meðal annars til þetta:

Það má segja að þetta sé alvöru hjá þeim drengjum!
Upphitun:
Fyrir hvern leik í sumar verð ég með upphitun þar sem farið verður yfir mótherja, liðið okkar, meiðsli og líklegt byrjunarlið, menn mega ekki fara að gráta ef ég stilli þeim ekki upp í byrjunarlið, þetta er uppá djókið en það er svo þjálfarinn sem velur liðið.
Mótherjar:
Esjan er nýtt lið inn í deildina og fóru þeir beint í efri riðil og var það að þeirra ósk en ég get í rauninni ekkert sagt um liðið, hef aldrei séð þá spila en veit um 3 leiki sem þeir hafa spilað, frumraun þeirra var gegn FC Ice og töpuðu þeir 5 - 0 í sínum fyrsta leik en vantaði reyndar marga hjá þeim heyrði ég, þeir unnu síðan Vatnsbera 4 - 1 sem við töpuðum 3 - 0 fyrir í æfingamótinu, svo um daginn töpuðu þeir fyrir Hómer 0 - 2, semsagt 1 sigur og 2 tapaðir úr leikjum sem ég veit um hjá þeim, það segir akkúrat ekkert! Við förum algerlega blindandi í þennan leik og leggjum hann upp með eins og við spiluðum síðasta leik.
Vatnaliljur komnir og farnir:"Smá breyting" á liði okkar frá því í fyrra...
Komnir: Ingó, Siggi S, Guðni T, Gunni Sænski, Garðar, Eyvi, Emil A og Óskar
Farnir: Andri, Stebbi, Simmi, Tommi, Ívar Hilmars, Andri Hrafn og Addi
Þess má til gamans geta að meðalaldur leikmanna sem eru farnir er 24,2 ára en meðalaldur leikmanna sem eru komnir er 31,25 ára.
Mjög svo skemmtileg tölfræði
Líklegt byrjunarlið: (giska frá æfingaleikjum)
Arnar Rikki
Mikki
Gunni S Garðar
Heiðar
Emil A Helgi Davíð Krissi
Siggi
Ussss! Við stöndum frammi fyrir því að eiga 2 góða menn í hverja stöðu, erum að púsla saman góðu liði en eins og ég sagði þá er ég að giska út í bláinn og er þetta aðallega gert upp á gamanið og eiga menn ekki að taka þetta til sín, því þeim sem er stillt upp í líklegt byrjunarlið gætu allt í eins verið á bekknum þegar Kóngurinn tilkynnir liðið.
Sagan:
1.umferð hefur ekki alltaf hentað Vatnaliljum...
1.umferð 2005... Vatnaliljur - Mannsi 2 - 4
1.umferð 2006... Vatnaliljur - Hunangstunglið 2 - 0
1.umferð 2007... Vatnaliljur - Vængir Júpíters 0 - 1
1.umferð 2008... Vatnaliljur - Dragon 1 - 1
4 stig af mögulegum 12 í fyrstu umferð.
Forföll:
Menn hafa eitthvað verið að meiðast lítillega á undirbúningstímabili en það eiga allir að vera búnir að hrista það af sér og klárir í fyrsta leik á Fimmtudag!
Hópurinn:Kiddi mun tilkynna hópinn á æfingunni sem verður annaðkvöld en hún verður auglýst hérna á morgun á síðunni og einnig fá menn sms.
Vatnaliljur - Esjan
Kórinn
Fimmtudag
Kl.21:00